Kvikmyndasíðan Twitchfilm.com birti á dögunum myndir úr íslensku splatter-hryllingsmyndinni Reykjavik Whale Watching Massacre. Myndin fjallar um hóp af fólki í hvalaskoðunarferð sem er tekið upp í hvalveiðibát þegar hvalaskoðunarbáturinn þeirra bilar.
Myndin er framleidd af framleiðslufyrirtækinu Kisa sem er í eigu þeirra Ingvars Þórðarsonar og Júlíusar Kemp en Júlíus er einmitt leikstjóri myndarinnar. Af myndunum sem birtar eru á Twitchfilm er hér á ferðinni blóðug hrollvekja enda myndirnar hverjar heldur betur skuggalegar.
Með hlutverk í myndinni fara meðal annars Helgi Björnsson, Gunnar Hansen, Ragnhildur Steinunn, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Stefán Jónsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Snorri Engilbertsson og Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir auk fjölda erlendra leikara.
Á myndunum má meðal annars sjá Ragnhildi Steinunni með stutt, brúnt hár í sínu hlutverki og leiklistarnemann Þorvald Davíð Kristjánsson með aflitað hár og demantslokk í eyranu. Helgi Björnsson sem leikur „vonda karlinn“ í myndinni er líka heldur ófrýnilegur og sjúskaður að sjá.
Eins og DV greindi frá í síðustu viku verður Reykjavik Whale Watching Massacre frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes næsta vor.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar
Bauð engum stjörnum