Sigurjón er að koma á fót litlu ráðgjafafyrirtæki og vonast hann til þess að geta fengið verkefni hjá Landsbankanum. Mynd: DV
Sigurjón Þ. Árnason hefur komið sér upp skrifstofuhúsnæði í byggingu Landsbankans við Pósthússtræti. Þar ætlar hann að reyna að koma upp litlu ráðgjafafyrirtæki. Hann segist vonast til þess að fá einhver verkefni hjá Landsbankanum. Kollegi hans og annar fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, Halldór J. Kristjánsson, tapaði öllum sínum hlutum í bankanum þegar ríkið tók bankann yfir. Hann segist þó ekki vera í slæmri stöðu enda hafi hann einnig fjárfest í fasteignum og jörðum. Halldór tók engin lán fyrir bréfum sínum í bankanum en þau voru öll skráð á nafn hans.
Vinnur fyrir sjálfan sig
Sigurjón Þ. Árnason fyrrverandi bankastjóri Landsbankans kom sér fyrir á þriðju hæð í skrifstofuhúsnæði Landsbankans á Pósthússtræti fyrir nokkrum dögum. Þetta staðfestir hann við DV. Hann segist ekki vera að vinna fyrir bankann, heldur sjálfan sig.
Aðspurður um það hvaða starfsemi fari fram á skrifstofunni segist hann vera að koma á fót litlu ráðgjafafyrirtæki. „Sko. Það sem ég er að reyna að sjá er hvort maður eigi möguleika á því að vinna ráðgjöf fyrir hina og þessa. Maður er að reyna að búa sér til vinnu,“ segir Sigurjón og bætir því við að hann vilji helst halda því fyrir sjálfan sig hvað hann ætli sér að gera með fyrirtækið.
Leigir af Landsbanka
Sigurjón leigir skrifstofuna af Landsbankanum. Hann segir þó að Landsbankinn hafi leigt húsnæðið af fyrirtæki sem eigi fasteignir út um alla borg. Hann segir skrifstofuhúsnæðið vera tómt og að verið sé að yfirgefa skrifstofur Landsbankans í húsnæðinu. „Þetta er allt meira og minna tómt núna,“ segir hann.
Blaðamaður DV heimsótti húsnæðið fyrir nokkrum dögum. Á fjórðu hæðinni, fyrir ofan nýja skrifstofu fyrrverandi bankastjórans, voru skrifstofur Landsbankans en þar var ennþá starfsemi í gangi. Þegar Sigurjón var spurður út í þetta sagði hann; „þá er bara ekki búið að færa það. Annars veit ég það ekki nákvæmlega. Ég held að það eigi að leigja þetta út fyrir einhverja nýsköpunarstarfsemi,“ segir hann.
Vonast eftir verkefnum
Sigurjón segir að hinar og þessar deildir Landsbankans hafi verið í húsinu. Hann vill þó ekki fara nánar út í það. Á skilti sem er á veggnum fyrir utan dyr húsnæðisins kemur fram að á þriðju hæðinni, þar sem skrifstofa Sigurjóns er, sé lögfræðisvið bankans staðsett. Þegar hann er spurður hvort að hann sé byrjaður að gefa Landsbankanum ráðgjöf svarar hann; „já ég ætla að vona að ég geti fengið einhver verkefni þar eins og annars staðar. Að sjálfsögðu.“
Hann tekur fram að það geti vel farið svo að að hann komi að einhverjum verkefnum til aðstoðar bankans. Aðspurður um það hvort að hann hafi átt bréf í bankanum segir hann svo ekki hafa verið. Sigurjón segist undanfarið hafa skráð niður það sem gerðist í aðdraganda hrunsins til þess að það lægi fyrir og til að tryggja að menn hafi réttar upplýsingar. „Ég er auðvitað alltaf boðinn og búinn til að hjálpa Landsbankanum. Ég er alltaf tilbúinn til þess að gera það,“ segir hann að lokum.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir