ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Tveggja vikna laun í skattahækkanir

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:07 › 15. desember 2008
Mynd: DV

Viðbúið er að meðalmaðurinn beri á milli hundrað til tvö hundruð þúsund krónum minna úr býtum á næsta ári vegna þeirra skattahækkana og annarra hækkana sem stjórnvöld hafa boðað eða þegar samþykkt. Þá er þó miðað við að laun hans haldist óbreytt.

Ofan á þetta bætist að vegna halla á fjárlögum má gera ráð fyrir að hver Íslendingur, frá nýfæddum börnum til elstu borgara landsins, verði skuldsettur fyrir rúmri hálfri milljón króna.

Þetta er aðeins hluti af þeirri kjaraskerðingu sem almenningur verður fyrir vegna bankahrunsins. Þannig reynist verðbólgan mörgum dýrkeypt auk þess sem þúsundir karla og kvenna hafa misst störf sín.

Nánar í DV í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.