Það eru breyttir tímar hjá Ármanni Þorvaldssyni, fyrrum forstjóra Kaupþings í London, samkvæmt því sem Séð og heyrt greinir frá. Á uppgangstímum hélt hann frægar áramótaveislur þar sem meðal annars Tom Jones og Duran Duran komu fram. Nú hefur Ármann sett glæsiíbúð sína í Skuggahverfinu á sölu og framkvæmdir við einbýlishús hans á Dyngjuvegi eru stopp.
Nú er Ármann sem á milli steins og sleggju, atvinnulaus eftir að bankanum var lokað í London og lítið fyrir fyrrum bankaforstjóra að gera á Íslandi um þessar mundir. Ármann varð í raun frægur á Íslandi eftir að hann hóf að halda mjög veglegar áramótaveislur í London. Í einni þeirra kom Tom Jones fram og Duran Duran í annarri. En það eru róleg áramót fram undan hjá Ármanni.
Meira í Séð og heyrt!





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Cox ekki sofið hjá í tæplega 2 ár
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar