ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.7° 9m/s E

Tekjuafkoma ríkisins í sögulegu lágmarki

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:29 › 15. desember 2008
Árni Mathiesen, fjármálaráðherra.

Árni Mathiesen, fjármálaráðherra. Mynd: DV

Tekjuafkoma ríkisins á þriðja ársfjórðungi þessa árs er lakari en nokkru sinni frá því að Hagstofa Íslands hóf skýrslugerð af þessu tagi í ársbyrjun 2004. Nam tekjuhalli hins opinbera á þessum ársfjórðungi 15 milljörðum króna samanborið við um 17 milljarða króna tekjuafgang á sama tíma 2007.

Sem hlutfall af landsframleiðslu var tekjuhallinn 1,1 prósent og sem hlutfall af tekjum hins opinbera 9,7 prósent. Á fyrstu 9 mánuðum ársins varð tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 2,2 milljarða króna, sem samsvarar 0,2 prósentum af landsframleiðslu, en á sama tíma 2007 var tekjuafkoman hins vegar jákvæð um rúmlega 51 milljarð króna, eða 4 prósent af landsframleiðslu.

Tekjuafkoma ríkissjóðs og almannatrygginga var neikvæð um rúmlega 11 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi 2008 samanborið við um 16 milljarða króna jákvæða afkomu árið áður. Á fyrstu 9 mánuðum ársins var tekjuafkoma þessara aðila jákvæð um 3 milljarða króna samanborið við rúmlega 44 milljarða króna á sama tímabili 2007.

Tekjuafkoma sveitarfélaganna var einnig neikvæð á 3. ársfjórðungi 2008 eða um 3,9 milljarða króna og því mun lakari en á sama tíma 2007 er hún var jákvæð um 1,4 milljarð króna. Fyrstu 9 mánuði 2008 mældist tekjuafkoma sveitarfélaganna neikvæð um 5,2 milljarða króna samanborið við jákvæða afkomu upp á 6,1 milljarð króna á sama tímabili 2007, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.