Á öllum heimilum Pandys var að finna fölsk loft og felustaði sem erfitt var að koma augu á og komast að.
Gamalt sakamál úr helgarblaði DV.
Höfundur: Kolbeinn Þorsteinsson
Séra Andras Pandy hafði ákveðnar skoðanir á því í hverju skyldur sínar sem föður væru fólgnar. Ef einhver í fjölskyldunni setti sig upp á móti á honum molaði hann höfuð viðkonmandi með járnröri, hlutaði líkið í sundur og kastaði líkamshlutunum í úrgang hjá nálægu sláturhúsi. Allt sem hægt var að bera kennsl á, til dæmis höfuð, leysti Pandy upp í sýru.
Tvær eiginkonur, tveir synir og tvær dætur féllu fyrir banvænri reiði hins harðúðuga prests, en aldrei fannst tangur né tetur af líkamsleifum þeirra.
Andras Pandy fæddist í Ungverjalandi 1927. Hann hóf nám í guðfræði í Sviss tuttugu og níu ára að aldri. Meðan á námi hans stóð kvæntist hann ungverskri flóttakonu, Ilonu Sortes, og eignuðust þau dótturina Agnesi. Þegar hann var þrjátíu og tveggja fluttu þau til Belgíu þar sem Pandy þjónaði samfélagi ingverskra mótmælenda. Þess var ekki langt að bíða að hagur Pandys vænkaðist, hann var heillandi prestur, og varð brátt eigandi þriggja heimila í Brussel. Fjölskyldan stækkaði og 1961 fæddist sonurinn Daníel, og þremur árum síðar annar sonur, Zoltan.
Ekki við eina fjölina felldur
Hjónaband Pandy og Ilonu var stormasamt, og þau skildu. Pandy kvæntist að nýju og fyrir valinu varð Edit Fintor. Hún átti þrjár dætur á táningsaldri og Pandy hoppaði upp í rúm hjá einni þeirra, Timeu. Timea varð barnshafandi, og tímabært fyrir Pandy yfirgefa aðra eiginkonu sína.
En Timea átti í vandræðum með sérann. Henni lærðist smám saman að honum líkaði ekki ef einhver fór í bága við óskir hans. Til að fyrirbyggja allan misskilning sagði hún Pandy að halda sig fjarri Mark, ávexti samruna þeirra, og að hún hugðist flytja til annars lands til að þurfa ekki að hafa neitt saman að sælda við barnsföður sinn.
Slík áform hugnuðust Pandy engan veginn og lagði á ráðin, ásamt Agnesi dóttur sinni, sem nú var fulltíða, um að drepa Timeu.
Agnes sat fyrir Timeu og sló hana í höfuðið með járnröri, en fyrir kraftaverk lifði Timea tilræðið af og þegar hún hafði náð sér flýði hún ásamt syni sínum til Kanada.
Pandy var ekkert á því að gefast upp, og fóru hann og Agnes nokkrar ferðir til Kanada til að fullkomna verkið. En að lokum urðu fleiri ferðir ekki nauðsynlegar því Timea ákvað að setjast að í Ungverjalandi.
Hrein og klár uppreisn
En þætti Edit Fintor var ekki lokið. Hún var bálreið Pandy fyrir að hafa dregið Timeu á tálar með þessum afleiðingum og að hann vildi hana feiga var meira en Edit þoldi. Hún og ein dætra hennar fóru ekki launkofa með stuðning sinn við Timeu, og þá skoðun sína að Pandy gengi ekki heill til skógar.
Þetta var meira en sérann lét bjóða sér, að hans mati var um að ræða hreina og klára uppreisn og það yrði ekki liðið.
Í júlílok 1986 barði hann hina uppreisnargjörnu dóttur til dauða á meðan Agnes lét hamar vaða í höfuð Edit. Að morðunum loknum fór Pandy til lögreglunnar og tilkynnti að Edit, eiginkona hans, væri horfin. „Hún hvar fyrir um mánuði síðan. Allt sem ég hef fengið er bréf frá henni, póstlagt í Þýskalandi, og nokkur símskeyti,“ sagði hann.
Eðli málsins samkvæmt bar rannsókn lögreglunnar í Þýskalandi ekki árangur.
Hvergi nærri hættur
Ilona, fyrsta kona Pandy, var þegar hér var komið sögu orðinn honum þungur ljár í þúfu. Hennar sök var ekki stór, hún hafði látið í ljósi óánæju sína með samband Pandys og Timeu. Með óánægju sinni undirritaði hún eigin dauðadóm. Pandy lét verkið í hendur Agnesi, dóttur Ilonu, og 28. mars 1988 fór Agnes auðsveip heim til móður sinnar og myrti hana. Til að fullkomna áhrifin skaut hún einnig til bana bróður sinn, Daníel, sem þá var tuttugu og sex ára.
Pandy lét sitt ekki eftir liggja, því skömmu síðar myrti hann hinn son sinn, Zoltan, sem var orðinn frekar hnýsinn vegna hvarfs móður sinnar og bróður. Reyndar fannst Pandy líka að önnur af sínum ættleiddu dætrum væri orðin helst til sjálfstæð. Hún hafði fengið þá flugu í höfuðið að konur hefðu rétt og ætlaði að flytjast á brott og búa í óvígðu sambandi með einhverjum karlmanni. Það leist Pandy ekki meira en svo á, þannig að hann drap hana.
Agnesi ofbýður
Eftir því sem tíminn leið urðu reiðköst Pandys hinni annars gtryggu Agnesi ofviða. Fjórum árum eftir morðin á Ilonu og Daníel fór Agnes til lögreglunnar, ekki síst af ótta við að hún væri næst á lista fórnarlamba hans.
„Faðir minn hefur átt í kynferðislegu sambandi við mig. Einnig hafa sex fjölskyldumeðlimir horfið með frekar undarlegum hætti. Faðir minn hefur líka átt í kynferðislegu sambandi við hálfsystur mína,“ sagði hún lögreglunni.
En þar sem engin lík var að finna gat lögreglan lítið aðhafs á grundvelli frásagnar Agnesar einnar. En 1997 fór Timea til ungversku lögreglunnar og lagði fram kvartanir. „Agnes reyndi að myrða mig og faðir minn nauðgaði mér,“ sagði hún. Þann 20. október sama ár gerði lögreglan húsleit á öllum heimilum Pandys í Belgíu. Í kjallara eins þeirra fundust mannabein sem steypt hafði verið yfir. Rannsókn leiddi í ljós að þau voru ekki ýkja gömul og tilheyrðu um tuutugu manneskjum. Sjö eða átta þeirra höfðu verið konur á aldrinum fjörutíu til fimmtíu ára. Engin þeirra hafði verið skyld Pandy.
Fölsk loft og eftirlit
Á öllum heimilum Pandys var að finna fölsk loft og felustaði sem erfitt var að koma augu á og komast að. Á sumum þeirra fundust skotvopn. Einnig fann lögreglan eftirlitsmiðstöðvar sem gerðu Pandy kleift að fylgjast náið með því sem átti sér stað í flestum herbergja heimilisins.
Andras Pandy var handtekinn mánuði síðar. Hann neitaði ásökunum um sifjaspell og nauðgun, og sagði að enginn fjölskyldumeðlimur hefði verið myrtur. Þeir sem horfnir voru hefðu einfaldlega tekið sig upp og lent í slagtogi með sértrúarsöfnuði, hann hefði meira að segja heimsótt þá endrum og sinnum.
Þá staðreynd að erfðasýni sannaði að hann væri faðir Marks útskýrði hann á þann hátt að Timea hefði fengið sæði hans í sig fyrir slysni því þau hefðu deilt rekkju. Hvað varðaði skotvopnin og mannabeinin, sagði Pandy að hann hefði ekki minnstu hugmynd um hvernig stæði á þeim í hans híbýlum.
Andras Pandy fékk lífstíðardóm fyrir sex morð og fyrir að nauðga þremur dætra sinna. Agnes var ákærð fyrir fimm morð og hlaut tuttugu og eins árs dóm. Hún sagði að sér þætti leitt hvað hefði gerst, og geðlæknar komust að þeirri niðurstöðu að hún ætti við persónuleikavandamál að stríða, þjáðist af minnimáttarkennd á háu stigi og hafi verið fullkomlega á valdi föður síns.
Andras Pandy sýndi enga iðrun, hvorki við réttarhöldin né þegar dómur var kveðinn upp.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu