„Málinu var frestað,“ segir Jóhann Haukur Hafstein, lögfræðingur þeirra sextán einstaklinga og fyrirtækja sem vilja útskýringar á tapi peningamarkaðsbréfa Landsbankans en skýrslutökur áttu að fara fram í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudag.
Þeir sem áttu sparifé í peningamarkaðsbréfum Landsbankans töpuðu meira en þeir sem áttu sparifé í öðrum bönkum, en afföll vegna reikningsins voru um 30 prósent. Það er Landsvaki hf. sem fer með peningamarkaðssjóðina en framkvæmdastjóri eignastýringasviðs Landsvaka, Stefán H. Stefánsson, og Sigurður Óli Hákonarson framkvæmdarstjóri sögðu upp störfum sínum hjá fyrirtækinu í lok síðasta mánaðar. Landsvaki var undirfélag Landsbankans og sá alfarið um sjóðina.
Einstaklingarnir sem stefna sjóðnum vilja upplýsingar um það hvernig þeir voru samansettir og hver fjárfestingastefna þeirra var en þau hafa ekki samþykkt uppgjörið. „Ef það var að mestu handahófsverð sem nýju bankarnir greiddu fyrir eignir sjóðanna hvers vegna ákvað þá Nýi Landsbankinn að greiða minna en hinir? Á ekki að gæta jafnræðis milli allra þeirra sem eiga í peningamarkaðssjóðum?“ spurði Hulda Elma Guðmundsdóttir í viðtali við DV fyrir nokkrum vikum en hún tapaði talsverðum fjármunum á sjóðunum.
Þrátt fyrir að hafa leitað svara í talsverðan tíma og farið á fundi með Landsbankanum eru sparifjáreigendur ekki sáttir við rýran hlut sinn. Máli í héraðsdómi gagnvart peningamarkaðssjóðunum var frestað þangað til í seinni hluta þessarar viku.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ