ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.4° 10m/s S

Lögregla blandast í steggjun

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:18 › 15. desember 2008

Lögreglan í Kaupmannahöfn setti í gang viðamikla leit að fórnarlambi mannræningja á laugardaginn. Manninum hafði verið rænt á Amager; poki var settur yfir höfuð hans og honum síðan hent inn í flutningabíl. Vitni að atvikinu hafði samstundis samband við lögregluna.

Lögreglan komst að því hver var eigandi flutningabílsins og hafði samband við hann. Í ljós kom að um var að ræða steggjun og fórnarlambið var brúðgumi og vinur „mannræningjanna“.

Lögreglan á erfitt með að sjá grínið í steggjuninni og að mati Hans Henrik Raben hjá lögreglunni er brýnt að íhuga hvaða afleiðingar svona steggjun getur haft í för með sér.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.