ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Ljósmyndaði „draug“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:55 › 15. desember 2008
Dularfulla veran er inni í rauða hringnum.

Dularfulla veran er inni í rauða hringnum. Mynd: Ananova

Dularfull ljósmynd sem tekin var á hóteli í hálendi Rúmeníu hefur vakið mikla athygli. Svo virðist sem framliðin kona hafi náð að læða sér inn á myndina.

Ljósmyndarinn, hin 33 ára gamla Victoria Iovan, segir að hún hafi verið að taka mynd af kærastanum sínum. Þegar hún hafi komið heim hafi hún farið að skoða myndina og tekið eftir dularfullu konunni í horni myndarinnar.

Hótelið sem um ræðir, heitir Decebal og er staðsetti í Baile Herculane fjallasvæðinu í Rúmeníu. Það er 150 ára gamalt en rúmenskar þjóðsögur segja að undir hótelinu sé að finna fjársjóð frá tímum Rómarveldis. Er jafnvel talið að konan á myndinni sé að gæta þess að fjársjóðurinn komist ekki í hendur fjársjóðsleitarmanna, að því er rúmenskir fjölmiðar greina frá.

Rúmensk yfirvöld hafa hvatt fólk til að halda sig fjarri hótelinu en þó ekki vegna draugagangs heldur vegna þess að framkvæmdir standa nú yfir á hótelinu sem ekki hefur verið í notkun í áraraðir.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.