ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Kynþáttahatarar dæmdir fyrir morð

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:02 › 15. desember 2008
Ofbeldisverkin voru framin í Moskvu.

Ofbeldisverkin voru framin í Moskvu.

Sjö rússneskir kynþáttahatarar hafa verið dæmdir í sex til tuttugu ára fangelsi fyrir hrottaleg morð sem hópurinn framdi frá ágúst 2006 til október 2007. Mennirnir voru sakfelldir fyrir morð á tuttugu mönnum en auk þess fyrir morðtilraunir við tólf aðra. Ofbeldisverkin áttu sér stað í Moskvu.

Roman Kuzin fékk þyngsta dóminn, eða tuttugu ára fangelsi. Hópurinn tók hluta af ofbeldisbrotum sínum upp og setti myndböndin á Internetið. Allir mennirnir sem um ræðir voru undir lögaldri þegar brotin voru framin. Ofbeldisbrotin beindust aðallega gegn innflytjendum frá Asíu og Kákasuslöndum gömlu Sovétríkjanna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.