Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Eftir heils árs baráttu við kerfið tókst Rúmenanum Gheorghe Stirbu loksins að fá dómsúrskurð þess efnis að hann væri í tölu lifenda. Málið upphófst þegar Gheorghe Stirbu ætlaði að endurnýja skilríki sín fyrir um ári. Það gekk ekki eftir því yfirvöld höfðu ruglað honum saman við annan mann, sem hafði látist.
Þrátt fyrir að Gheorghe Stirbu stæði ljóslifandi fyrir framan skriffinnana neituðu þeir að gefa sig. Stirbu var dauður og skyldi vera það áfram.
Gherorghe Stirbu átti þann kost einan að fara dómstólaleiðina. Dómari í málinu bauð Stirbu velkominn í tölu lifenda með því að skikka hann til að greiða málskostnað, um 85.000 krónur. Við það runnu tvær grímur á Stirbu sem íhugaði að kannski hefði verið betra að vera dauður.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu