Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt fjóra karlmenn í fangelsi fyrir aðild sína að hinu svokallaða Keilufellsmáli. Sá sem fékk þyngsta dóminn var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi. Hinir þrír voru dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi. Þá var mönnunum gert að greiða fórnarlömbum sínum umtalsverðar skaðabætur.
Mennirnir voru ákærðir og sakfelldir fyrir að ráðast með bareflum á sjö menn í íbúðarhúsi í Keilufelli um páskana á þessu ári. Árásin var mjög hrottaleg en lögreglan handtók í upphafi um tíu manns vegna gruns um aðild að árásinni. Aðeins fjórir voru hinsvegar ákærðir. Mennirnir voru meðal annars vopnaðir öxum, járnrörum og öðrum bareflum.
Mönnunum var gert að greiða fórnarlömbum sínum skaðabætur frá 670 þúsund krónum upp í eina og hálfa milljón.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna