ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

Jóhanna þarf að rassskella hina ráðherrana

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:42 › 15. desember 2008
Þvörusleikir segir að Jóhanna Sigurðardóttir hafi verið óþekk þegar hún hafnaði vantrausti á ríkisstjórnina.

Þvörusleikir segir að Jóhanna Sigurðardóttir hafi verið óþekk þegar hún hafnaði vantrausti á ríkisstjórnina.

Þvörusleikir afhenti Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra kartöflu og sleif rétt eftir hádegi í dag í Alþingishúsinu.
"Ég vil byrja á því að þakka þér fyrir þín störf í þágu fatlaðra, aldraðra og annarra, sem vilja því miður oft verða undir í samfélagi sem leggur meiri áheyrslu á peninga en fólk,“ sagði Þvörusleikir við þetta tilefni, og bætti við:

„Hinsvegar er það ábyrgðarhluti hjá þér að hafa hafnað vantrausti á ríkistjórn sem er nú þegar farin að beita niðurskurði gegn þínum góðu verkum og er líkleg til að standa gegn þér í framtíðinni. Því færð þú hér með kartöflu, vegna mikillar óþekktar. Einnig afhendi ég þér þessa sleif svo þú getir rasskellt hina óhæfu ráðherra og hrært aðeins upp í þessari blessuðu ríkistjórn,“ sagði Þvörusleikir en Jóhanna þakkaði pent fyrir sig að því er kemur fram í tilkynningu frá umboðsmanni jólasveinanna.

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og Einar K. Guðfinnsson landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra hafa þegar fengið kartöflur í skóinn, eins og komið hefur fram á dv.is

Guðlaugur Þór fékk kartöfluna fyrir að styðja ekki við ljósmæður í verkfalli sínu. Að mati Guðlaugs var heimsókn jólasveinsins „kjánaleg.“ Einar K. fékk kartöflu fyrir að viðhalda kvótakerfinu. Honum fannst viðeigandi að fá kartöflu í skóinn á ári kartöflunnar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.