ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Gísli Marteinn kjaftstopp

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:05 › 15. desember 2008

Gísli Marteinn Baldursson var töluvert á milli tannanna á fólki fyrr á árinu þegar ljóst varð að hann væri að flytja til Edinborgar í Skotlandi til náms en hygðist samt halda áfram sem borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Margir settu spurningarmerki við það hvernig Gísli gæti sinnt störfum sínum fyrir borgarbúa, verandi búsettur í öðru landi.

Ekki skal farið nánar út í það hér hvernig honum hefur farnast það, en Gísla hefur allavega gengið illa að blogga undanfarið. Ekki hefur birst stafkrókur á bloggsíðu borgarfulltrúans í tæpan mánuð. Síðast þegar Gísli bloggaði setti hann inn færslu tvo daga í röð en þá hafði einnig liðið mánuður frá síðustu skrifum kappans. Vonandi þýðir þetta að Gísli sé á útopnu við að láta gott af sér leiða í borgarmálunum og í náminu í landi karlmannspilsanna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.