ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Ginnt með gylliboðum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:28 › 15. desember 2008
Ágúst Ólafur, varaformaður Samfylkingarinnar, telur að Samfylkingin hafi staðið sig heilt yfir vel þegar kemur að efndum kosningaloforða.

Ágúst Ólafur, varaformaður Samfylkingarinnar, telur að Samfylkingin hafi staðið sig heilt yfir vel þegar kemur að efndum kosningaloforða. Mynd: Bragi Þór Jósefsson

„Sá loforðaflaumur sem Samfylkingin gaf fyrir síðustu kosningar er þess eðlis að í rauninni hefði aldrei verið hægt að standa við öll þessi gylliboð. Þegar stefnuskrár flokkanna eru skoðaðar sést greinilega að Samfylkingin lofaði áberandi mestu. Það er ljótur leikur að spila slíka vinsældapólitík,“ segir Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sem metur loforð Samfylkingarinnar mun meira úr takt við það sem staðið hefur verið við heldur en kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins.

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, telur heilt yfir að Samfylkingin hafi staðið sig vel þegar kemur að efndum kosningaloforða. Hann bendir á að ýmis atriði hafi verið á lista flokksins fyrir kosningarnar en ekki komist inn í stjórnarsáttmálann. „Þegar flokkar vinna saman þarf að gera málamiðlanir og sumu af því sem við lofuðum fyrir kosningar tókst okkur ekki að koma inn í sáttmálann,“ segir hann. Stefna Samfylkingarinnar um að lækka skatt á lífeyristekjur niður í 10 prósent er eitt af þeim atriðum sem ekki náðist sátt um við Sjálfstæðisflokkinn.

Nánar um loforð stjórnarflokkanna í DV í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.