Hetja ársins hjá DV verður nú valin í fyrsta sinn. Lesendur eru beðnir um að senda nafn eða nöfn þeirra sem þeim finnst verðugir þess að bera nafnbótina Hetja ársins 2008 fyrir eitthvað sem viðkomandi afrekuðu á árinu sem nú er senn á enda.
Allir Íslendingar og þeir sem búa hér á landi koma til greina í valinu og er öllum frjálst að senda inn tilnefningar. Engu skiptir hvort fólk er þjóðþekkt, minna þekkt eða alls ekkert þekkt; ríkt, fátækt eða þar á milli; útrásarvíkingur, fiskverkakona eða meindýraeyðir - allir eru gjaldgengir í kjörinu. Ef viðkomandi hefur ekki komist í fréttirnar fyrir afrek sitt verður að fylgja með lýsing á því hvernig hinn tilnefndi lét gott af sér leiða á árinu. Sérstök dómnefnd sem nánar verður kynnt síðar velur svo úr innsendum tilnefningum.
Bæði er hægt að senda tilnefningar á netfangið hetjaarsins@dv.is og á Birtíngur útgáfufélag, Lynghálsi 5, 110 Reykjavík. Skilafrestur er til miðnættis 23. desember en niðurstaða kosningarinnar verður kunngjörð í kringum áramótin.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir