Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Bev Stewart, amma í stórri enskri fjölskyldu í Vestur-Jórvíkurskíri, var orðin svo þreytt á eilífu rifrildi um besta sætið við sjónvarpið á heimilinu að hún bauð það upp á e-Bay.
Á e-Bay gátu fjölskyldumeðlimir síðan boðið í besta staðinn fyrir framan „sjónvarps-altarið“ og mun hæstbjóðandi njóta þess á jóladag þegar fjölskyldan, samkvæmt gamalli venju, safnast saman hjá ömmu og nýtur góðs matar og horfir síðan á sjónvarpið.
Árum saman hafa fjölskyldumeðlimir slegist um besta sætið, indælan hægindastól sem staðsettur er fyrir miðju, með borð undir kaffið eða ölið innan þægilegrar seilingar.
Sigurvegarinn var Alexis Stewart, tengdadóttir Bev, en hún bauð heilar 2.300 krónur fyrir herlegheitin.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu