ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.8° 6m/s SE

35 prósent á nagladekkjum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:25 › 15. desember 2008

35 prósent bifreiða í Reykjavík reyndust vera á negldum hjólbörðum fimmtudaginn 4. desember síðastliðinn. Á sama tíma í fyrra voru 38 prósent ökutækja á nagladekkjum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Árleg talning var gerð í 48. viku ársins 2008 og skiptist hlutfallið þannig að 35 prósent ökutækja voru á negldum dekkjum og 65 prósent á öðrum dekkjum.

Reykjavíkurborg hefur undanfarin ár bent ökumönnum á sterkt samband milli fjölda bifreiða á negldum dekkjum og svifryksmengunar í borginni þar sem naglarnir spæna upp malbikið. Draga þarf úr hlutfalli nagladekkja til að fækka þeim dögum þar sem mengunin fer yfir heilsuverndarmörk því svifryksmengun hefur slæm áhrif á þá sem þjást af lungnasjúkdómum eða eru með viðkvæm öndunarfæri.

Á árinu 2008 hefur svifryk farið 25 sinnum yfir heilsuverndarmörk en mátti einungis fara 18 sinnum yfir samkvæmt reglugerð nr. 251/2002. Framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu, sandstormar og mengun frá Evrópu eiga einnig sinn þátt í því hversu oft svifryk hefur farið yfir heilsuverndarmörk á þessu ári.

Næsta talning á nagladekkjum í Reykjavík verður gerð í janúar 2009.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.