ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Obama hægir sér í helgileiknum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:05 › 13. desember 2008
Barack Obama hefur eflaust sitthvað við fígúruna að athuga.

Barack Obama hefur eflaust sitthvað við fígúruna að athuga.

Litlar Barack Obama og Gordon Brown plastfígúrur hafa slegið í gegn á netinu og seljast eins og þær heitu lummur sem þeir eru að útdeila. Stytturnar góðu sýna nefnilega þjóðarleiðtogana tvo ganga örna sinna á grafískan hátt.

Tilvonandi Bandaríkjaforseti og forsætisráðherra Breta eru nýjasta viðbótin í hóp frægra stjórnmálamanna og íþróttamanna sem fá þann vafasama heiður að slíkar fígúrur séu gerðar af þeim.

Hefð er fyrir því í Katalóníu á Spáni að gerðar séu svokallaðir „caganer“ sem á góðri íslensku mætti kalla kúkara.

Katalóníumenn halda iðulega upp á jólin með því að koma fígúrunum fyrir í helgileiknum og skemmta sér síðan konunglega við að reyna koma auga á kúkarana sem eru táknrænir fyrir velmegun og góða uppskeru.

Caganers voru nú eitt sinn litlir skeggjaðir menn í fullum Katalóníu-skrúða en nú á dögum verður frægt fólk fyrir valinu. Í fyrra var knattspyrnumaðurinn Thierry Henry sem leikur með Barcelona mest selda fígúran.

Í ár hafa Bandaríkjamenn gripið æðið frá Spánverjum og maðurinn sem þeir kusu yfir sig sem forseta rokselst, sem kúkari.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.