ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Framtíðin ráðist fyrir jól

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:06 › 12. desember 2008
DV-mynd Sigtryggur Ari

Slagurinn um Morgunblaðið verður háður fyrir opnum tjöldum samkvæmt yfirlýsingum stjórnenda félagsins og Glitnis sem fer með völdin í félaginu nú. Framkvæmdastjórinn segir að nýtt blóð geti verið komið inn í félagið fyrir jól.

Glitnir hefur gengið frá skammtímasamningi sem tryggir Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, rekstrarfé fram yfir áramót. Frá þessu var greint á fundi með starfsmönnum í gær. Árlegar tekjur Árvakurs eru um fjórir milljarðar króna en skuldir félagsins við Glitni eru á fjórða milljarð króna. Miðað við veltu Árvakurs er mánaðarleg fjárþörf 150 milljónir króna að lágmarki.

Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Árnvakurs segir að öll laun hafi verið greidd, en félaginu tókst ekki að gera upp laun að fullu við starfsmenn um síðustu mánaðamót. Einar segir að lokið sé ákveðnum þætti í áætlunum um framtíð Árvakurs. Viðræður hefjist á næstu dögum við þá sem lýst hafa áhuga á að endurfjármagna félagið og koma með nýtt hlutafé inn í það. Einar segir að þeim viðræðum eigi helst að ljúka fyrir jól.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?