Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Raddir fólksins þagna á Austurvelli á laugardag. Þá hefjast mótmæli með öðrum hætti en samtökin Raddir fólksins hafa staðið fyrir undanfarna laugardaga. Í stað þess að fólk safnist saman og hlýði á ræður mælast fundarboðendur nú til þess að fólk líti til Alþingishússins, lúti höfði og hafi þögn í nákvæmlega 17 mínútur.
Í fréttatilkynningu sem Hörður Torfason, fundarstjóri mótmælafundanna á Austurvelli, sendi frá sér segir að kröfurnar séu þær sömu og fyrr: Núverandi stjórn Seðlabankans víki tafarlaust. Núverandi stjórn Fjármáleftirlitsins víki tafarlaust. Kosningar sem fyrst. Þá ítrekar hann að mótmælin og allar aðgerðir á vegum Radda fólksins séu alltaf friðsamlegar.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir