Fæstir bera traust til Davíðs Oddssonar, Árna M. Mathiesen og Björns Bjarnasonar. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar sem Markaðs- og miðlarannsóknir (MMR) unnu dagana 2 til 5. desember.
2.464 einstaklingar voru spurðir hve mikils traust þeir bæru til tiltekinna einstaklinga. 78 prósent sögðust bera lítið traust til Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra og Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra. 68 prósent sögðust bera lítið traust til Björns Bjarnasonar og 67 prósent til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, eiganda Baugs.
Flestir, eða 64 prósent, sögðust bera mikið traust til Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra. Þar á eftir koma Ólafur Ragnar Grímsson forseti sem 44 prósent sögðust bera mikið traust til og þá Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sem 40 prósent sögðust bera mikið raust til. Jóhanna er jafnframt sá einstaklingur sem fæstir segjast bera lítið traust til en 14 prósent aðspurðra sögðust bera
lítið traust til hennar. 28 prósent sögðust bera lítið traust til Ólafs Ragnars og 33% sögðust bera lítið traust til Þorgerðar Katrínar samkvæmt könnun MMR.
57 prósent segjast bera lítið traust til Gunnars Páls Pálssonar, formanns VR, og 52% segjast bera lítið traust til Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Nýja Glitnis.
Formenn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingar eru meðal þeirra sem njóta mests trausts samkvæmt könnuninni en 31 prósent til 33 prósent segjast bera mikið traust til þeirra þriggja.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
