ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.8° 6m/s SE

Völva Séð og heyrt rekin

17:46 › 1. desember 2008
Eiríkur Jónsson, ritstjóri Séð og heyrt, hefur látið völvu Séð og heyrt taka pokann sinn.

Eiríkur Jónsson, ritstjóri Séð og heyrt, hefur látið völvu Séð og heyrt taka pokann sinn.

Völva tímaritsins Séð og Heyrt var rekin í dag en spá hennar fyrir árið 2008 var ekki í takt við það sem í raun gerðist. Þetta staðfestir Eiríkur Jónsson, ritstjóri Séð og heyrt.

„Við sáum okkur ekki annað fært en að reka völvuna,“ segir Eiríkur.
Völvan spáði meðal annars arfaslöku gengi handboltalandsliðsins og að útrásarvíkingarnir yrðu í góðum gír.

„Þá sagði hún líka að kvennalandsliðið í knattspyrnu myndi ekki skila neinum árangri,“ segir Eiríkur og bætir við að nú komi það í hlut galdranornar að spá fyrir næsta ár.
„Það verður galdranorn sem spáir fyrir okkur og það undir nafni. Hún verður miklu, miklu betri,“ segir Eiríkur sem vill á engan hátt vera tengdur völvunni sem var rekin.
„Ég var staddur á þessum tíma í karabíska hafinu og spáin fór þar með úr mínum höndum og úr böndum,“ segir Eiríkur sem þó lofar að halda áfram að gera lífið skemmtilegra - án völvunnar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.