ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Tvennt ólíkt, ráðherrann og pabbinn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:03 › 1. desember 2008
Geir H. Haarde. Forsætisráðherra Íslands

Geir H. Haarde. Forsætisráðherra Íslands

Helga Lára Haarde segir það oft hafa verið erfitt að fylgjast með föður sínum af hliðarlínunni undanfarna mánuði. „Það er samt alveg tvennt ólíkt, stjórnmálamaðurinn Geir Haarde og pabbi minn. Ég reyni að halda því aðskildu en auðvitað er ekkert alltaf auðvelt að heyra hvernig fólk talar. Maður reynir að hugsa ekki um það. Ég veit hins vegar að hann er að gera sitt allra besta og mér finnst hann hafa staðið sig vel. Að standa undir svona pressu er ekki allra.“
Helga segir fólk stundum eiga erfitt með að greina milli embættisins og persónunar. „Pabbi verður auðvitað að geta tekið gagnrýni sem stjórnmálamaður en þegar fólk fer að koma með persónulegar árásir eins og hann sé fífl þá hættir maður líka að hlusta. Svoleiðis dæmir sig bara sjálft.“ segir Helga



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.