ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Jafnmikill stuðningur við VG og stjórnina

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:58 › 1. desember 2008
Steingrímur J. Sigfússon. Segir könnunina endurspegla undarlegt andrúmsloft í samfélaginu.

Steingrímur J. Sigfússon. Segir könnunina endurspegla undarlegt andrúmsloft í samfélaginu.

„Það eru ákveðin skilaboð fólgin í þessari könnun og endurspeglar mikla gerjun í samfélaginu,“ segir Steingrímur J. Sigfússon um hátt gengi Vinstri grænna sem þeir fengu í nýlegri könnun Gallup Capacent sem birt var í fréttatíma ríkissjónvarpsins í kvöld. Þegar DV leitaði til Steingríms, sem nú stýrir stærsta flokknum miðað við könnun Gallups, segir hann flokksmenn með báða fætur á jörðu; könnunin lýsir í raun sérstökum aðstæðum í samfélaginu.

Í sömu könnun galt Sjálfstæðisflokkurinn afhroð. Flokkurinn fékk 21 prósent fylgi sem er sögulegt lágmark. Í síðustu alþingiskosningum fékk Sjálfstæðisflokkurinn 37 prósent fylgi.
Samfylkingin nær varnarsigri en hún lækkar um eitt prósent, niður í 31 prósentu fylgi. Samfylkingin hefur þolað mikla gagnrýni undanfarið fyrir aðgerðarleysi. Sívaxandi gagnrýni kemur úr röðum Samfylkingarmanna sem eru ósáttir við fylgispekt flokksins við setu seðlabankastjórans, Davíðs Oddssonar.

Í könnun Gallup kemur einnig fram að stuðningur við ríkisstjórnina í heild sinni eru 32 prósent sem styðja ríkisstjórnina. Það mun vera minnsti stuðningur við ríkisstjórn frá árinu 1993.
Tæplega 10 prósent svarenda tóku ekki afstöðu eða neituðu að gefa hana upp og nærri 16 prósent sögðust myndu skila auðu.

Steingrímur telur hluta af háu gengi Vinstri grænna megi eflaust skrifa á hugmyndafræði flokksins þar sem græðgisstefnu er hafnað.
„Það eru málefnalegar innistæður fyrir þessu,“ segir Steingrímur sem leiðir stærsta flokk Íslands, samkvæmt könnuninni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.