ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Mótmælendur ætla heim til Davíðs

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:00 › 1. desember 2008
Mótmælendurnir hafa yfirgefið Seðlabankann

Mótmælendurnir hafa yfirgefið Seðlabankann

Mótmælendur eru farnir úr Seðlabankanum eftir að hafa náð samning við óeirðalögregluna. Þrír lögreglumenn eru eftir í anddyrinu en það var meðal annars ákvæði í samning milli lögreglunnar og mótmælenda. Mótmælendur öskra heimilisfang Davíðs Oddsonar og segja að stefnan sé tekin þangað.

Lögregla gaf viðvörun um að úða piparúða á fólkið ef það myndi ekki færa sig. Í hvert skipti sem lögreglan tók upp brúsana lyftu mótmælendur hendinni upp á táknrænan hátt eins og sést á meðfylgjandi mynd.

Búið var að fjölga lögreglumönnum við glerið í innganginum og segir blaðamaður sem er á staðnum að mikil hætta hefði getað skapast ef lögreglan hefði farið að úða piparúða á mótmælendurna því inngangurinn er þröngur og fólk gæti kramist undir.

Fólk söng: Ég veit um mann sem fer í taugarnar á mér, Davíð út, Davíð út.

Anddyrið hefur verið rýmt.

Viðbót: Ekkert varð úr fyrirhugaðri för mótmælenda að heimili seðlabankastjórans þegar allt kom til alls.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.