Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Einhverjir úr hópi mótmælenda kölluðu upp heimilisfang Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra og stungu upp á því að fyrst ekki væri hægt að hitta á hann í Seðlabankanum, þá ætti hópurinn að fara heim til hans. Ekkert virðist þó hafa orðið úr þessu. Mótmælendur sömdu við sveit óeirðarlögreglunmann um að hún myndi yfirgefa bankann og þá myndu mótmælendur fylgja á eftir.
Samkvæmt heimildum DV fór enginn mótmælendanna heim til Davíðs. Niðurstaðan mun hafa verið sú að Seðlabankinn sé eign þjóðarinnar, en heimili Davíðs ekki, og því stæðu ekki sömu rök til heimsóknar þangað. Hópurinn dreifðist þegar út úr Seðlabankanum var komið. Engu táragasi var beitt og mótmælendur sungu slagorð eins og „fólkið er valdið!“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna