ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Lögreglan yfirgaf anddyri Seðlabankans

Ásgeir Jónsson asgeir@dv.is
17:24 › 1. desember 2008
Andyri Seðlabankans. Lögreglan fór á undan mótmælendum sem fylgdu hennar fordæmi.

Andyri Seðlabankans. Lögreglan fór á undan mótmælendum sem fylgdu hennar fordæmi.

Engin lausn virtist vera á þeirri stöðu sem myndast hafði í andyrir Seðlabankans nú fyrir skömmu fyrr en lögreglan fór af svæðinu gegn því mótmælendur gerðu hið sama. Lögreglan hafði hótað mótmælendum að gripið yrði til notkunar piparúða ef ekki yrði farið að tilmælum hennar en allt kom fyrir ekki.

Mótmælendur sátu sem fastast fyrir þangað til einn þeirra stakk upp á því að vígbúin lögregla myndi yfirgefa andyrið af fyrrabragði. Mótmælendur lofuðu að fylgja því fordæmi sem þeir svo gerðu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.