ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW

Lögregla hótar að beita táragasi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:06 › 1. desember 2008
Mikill hiti er í mannskapnum en lögregla hefur hótað að beita táragasi fari fólkið ekk út úr bankanum.

Mikill hiti er í mannskapnum en lögregla hefur hótað að beita táragasi fari fólkið ekk út úr bankanum. Mynd: DV

Hópur fólks ruddist inn í Seðlabankann nú fyrir stundu og hefur lögreglan hótað að beita táragasi samkvæmt blaðamanni DV sem er á vettvangi. Talið er að minnsta kosti 200 manns séu inni í bankanum en fólkið situr á ganginum í anddyrinu og ætlar hvergi að hreyfa sig.

Lögreglan hótar hinsvegar að beita táragasi fari fólkið ekki. Ekki er vitað hvort Davíð Oddsson sé inn í bankanum en fólkið vill að Davíð komi út. Sumir mótmælendanna eru í ágætum gír og syngja gamla Eurvision slagara og sjómannalög.

Víkingasveitin er fyrir innan mótmælendur og er í viðbragðsstöðu geri fólk sig líklegt til að brjótast inn í bankann. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn er kominn á vettvang og reynir hann að róa mannskapinn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.