Ólafur Hr. Sigurðsson segir Seyðfirðinga hafa sótt mikið í sund og líkamsrækt eftir að hætt var að taka gjald fyrir þjónustuna.
„Með þessu móti bjóðum við upp á einn ódýrasta leikskóla landsins. Það þarf að gleðja fólk í kreppunni,“ segir Ólafur Hr. Sigurðsson, bæjarstjóri Seyðisfjarðarkaupstaðar. Ákveðið hefur verið að um næstu áramót verði vistunargjald á leikskóla bæjarsins lækkað úr 3150 krónum á klukkustund í 1575 krónur.
Fyrir börn í forgangshópum þarf aðeins að greiða 970 krónur. Afsláttur fyrir annað barn verður hækkaður úr 25 prósentum og í 75 prósent. Eftir sem áður verður gjaldfrjáls vistun fyrir þriðja barn.
Við breytingarnar fellur niður fjögurra tíma gjaldfrelsi mánaðarlega. Öll börn frá 12 mánaða aldri komast að á leikskólanum þar sem boðið er upp á 9,5 tíma vistun daglega. „Við gerum okkar besta til að gera vel við barnafjölskyldur,“ segir Ólafur.
Fleiri breytingar hafa þegar verið gerðar á gjaldskrám bæjarins. Allir fá frítt í sund og líkamsrækt til áramóta, hvort sem um er að ræða Seyðfirðinga eða aðkomufólk. Ólafur vekur sérstaka athygli á þessu með hliðsjón af því að námsmenn af landsbyggðinni fá ekki frítt í strætó á höfuðborgarsvæðinu, öfugt við heimafólk. „Mætingin hefur verið virkilega góð,“ segir hann. Frá áramótum verður síðan frítt í sund fyrir 16 ára og yngri.
Undanfarna mánuði hefur útlán af bókasafni bæjarins verið gjaldfrjálst. „Aukningin hefur verið gífurleg. Fólk virðist í þessu efnahagsástandi nýta sér afþreyingu sem kostar ekki neitt,“ segir Ólafur en áður voru það helst börn og ellilífeyrisþegar sem heimsóttu bókasafnið.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna