ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E

Ungfrú Ísland týndi kjólnum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:45 › 1. desember 2008
Alexandra hefur skemmt sér vel í Suður-Afríku

Alexandra hefur skemmt sér vel í Suður-Afríku

„Það hefur bara allt gengið vel fyrir utan vesenið með farangurinn hennar,“ segir Ívar Erlendsson faðir Alexöndru Helgu Ívarsdóttir, ungfrú Íslands sem nú er stödd í Suður-Afríku þar sem keppnin um Ungfrú Heim fer fram þann þrettánda desember.

Alexandra millilenti í London á leið sinni til suður-Afríku í síðustu viku og lenti í því óhappi að fá bara að fara með aðra ferðatöskuna sína af tveimur með sér á áfangastað þar sem hún var með yfirvigt.
„Ég er að vonast til þess að taskan sé að detta í hús hjá okkur. Kjóllinn sem hún á að vera í aðalkvöldinu er í töskunni og þjóðbúningurinn líka svo það er einsgott að taskan skili sér,“ segir Ívar sem lenti í suður-Afríku síðastliðinn föstudag.

„Alexandra er búin að skemmta sér rosalega vel og er núna stödd í tíu daga safaríferð þar sem þær hafa meðal annars verið að skoða demanta og sofa í tjöldum. Það var nú ekki rafmagn í ferðinni á tímabili svo stúlkurnar gátu ekki notað neinar hárþurrkur eða rafmagnsgræjur,“ segir Ívar sem að vonum er stoltur af dóttir sinni enda er henni spáð tuttugasta sæti í keppninni af veðbönkum.
„Ég sé hana ekki fyrren eftir viku þegar hún kemur til baka úr ferðinni. Ég skellti mér sjálfur í safarí-veiðiferð svo það gaf manni ennþá meiri ástæðu til að koma hingað út og fylgjast stoltur með Alexöndru.“

Þess má geta að á morgun, þriðjudag klukkan fimm, fara fram prufur á Broadway fyrir keppnina um Ungfrú Reykjavík 2009.

krista@dv.is



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.