Keisaraskurðir. Beiðnum um slíka aðgerð hefur fjölgað að undanförnu en það má að hluta til rekja til Hollywood.
„Já ég held að það sé alveg rétt,“ segir Hulda Hjartardóttir, yfirlæknir á fæðingardeild Landspítalans, aðspurð hvort beiðnum um keisaraskurð hafi fjölgað undanfarin ár. Þær ljósmæður sem DV hefur rætt við eru því einnig sammála að áhugann megi að stórum hluta rekja til Hollywood þar sem frægar mæður panti sér keisaraskurði í stórum stíl.
Söngkonan Britney Spears er ein þeirra, hún skipulagði fæðingu sonar síns upp á dag og það með keisaraskurði. Óupplýstar ungar íslenskar mæður telja keisaraskurð sjálfsagt mál og því hafa ljósmæður og yfirlæknar á hverri fæðingardeild fyrir sig reynt að upplýsa þær um bæði kosti og galla þess að leggjast undir hnífinn.
Mikil aðgerð
„Þetta er stór kviðarholsaðgerð með öllum þeim hættum sem því fylgja. Þá eru allir fylgikvillar fæðingar margfalt algengari eftir keisaraskurð, hvort sem það eru blæðingar, sýkingar eða blóðtappar í fótum og lungum. Það felst því enginn ávinningur í því að fæða með keisaraskurði. Konur geta líka verið lengur að ná sér eftir slíka fæðingu,“ segir Hulda sem hefur í gegnum tíðina reynt að upplýsa konur eftir fremsta megni um kosti og galla keisaraskurðar. Hulda segir að langbest sé að fæða á eðlilegan hátt.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir
Gat ekki hróflað við Davíð
Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi
Jón Gnarr setur Vetrarhátíð