ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Jólasveinaskortur í Þýskalandi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:15 › 1. desember 2008
Þýskur jólasveinn. Albert Niemeyer hefur staðið vaktina í 55 ár.

Þýskur jólasveinn. Albert Niemeyer hefur staðið vaktina í 55 ár.

Þýska þjóðin stendur frammi fyrir miklum jólasveinaskorti í aðdraganda jólanna. Nýliðar í stéttinni standast ekki kröfur um gleðilegt fas og fagmennsku, sem gerðar eru til jólasveina. Atvinnuskrifstofur leita nú logandi ljósi að nýliðum, en hafa tilkynnt að áþreifanlegur skortur sé á mjúkholda, glaðværum síðskeggjuðum jólasveinum með hreint sakavottorð.

Það er greinilega ekki létt verk og löðurmannlegt að vera jólasveinn og á meðal þess sem þarf að prýða þessa gleðigjafa aðventu og jóla í Þýskalandi er viðeigandi lágur rómur, barngæska, gott vald á þýskri tungu, og viðamikil kunnátta í jólaljóðum og jólasöngvum. Til að fullkomna myndina verða þeir einnig að vera færir um spuna og búa yfir orku.

Það nægir ekki að geta afhent jólapakka, jólasveinarnir þurfa að vera trúverðugir þegar þeir útskýra fyrir börnunum fjarveru jólasleðans og hreindýranna, og það krefst sterkra tauga að eiga við óþolinmóð börn.

Jólasveinar hafa aldrei verið jafneftirsóttir í Þýskalandi því fjölskyldur reyna að fanga jólaandann mitt í skugga efnahagsvandamálanna sem nú hvílir víða yfir. Í Berlín liggja fyrir um fimm þúsund pantanir á jólasveinum fyrir einkauppákomur, skóla og verslunarmiðstöðvar. Um fimm hundruð sveina þarf til að anna þeim pöntunum, og enn vantar eitt hundrað og fimmtíu jólasveina.

Svipaða sögu er að segja um ástandið í München og Hamborg og það er mat þeirra sem til þekkja að hinar miklu kröfur sem gerðar eru til jólasveinanna valdi því að færri sækjast eftir starfanum.
Jens Wittenberger, sem sér um ráðningu jólasveina hjá Jobcafe í München, segir að þeir séu fáir sem búi yfir þeim eiginleikum sem prýða jólasvein. Nýliðar á hans snærum fá stífa þjálfun, til dæmis í að svara spurningum á borð við: „Af hverju virðist skeggið þitt vera gervi?“

Jólasveinar í Þýskalandi geta þénað allt að sextíu evrum á klukkutíma, en það samsvarar tæpum ellefu þúsund íslenskum krónum.

kolbeinn@dv.is



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.