Stuðningur Íslendinga við Geir H. Haarde forsætisráðherra er jafnlítill og stuðningur bandarísku þjóðarinnar við George W. Bush forseta þegar hann mældist sem verstur hjá Gallup í lok september. Einungis 27,2 prósent aðspurðra í nýrri könnun Gallups segjast ánægð með Geir.
Þannig birti bandaríska Gallup sérstaka frétt um það þegar stuðningur við Bush féll niður í "sögulega lægð" 30. september síðastliðinn. Sú sögulega lægð var 27 prósent, eða sami stuðningur og er nú við Geir Haarde forsætisráðherra.
Nýjar kannanir af ánægju með störf Bush benda þó til þess að stuðningur við hann minnki enn meira en gefið var til kynna í Gallup-könnuninni.
Þó er Geir ekki nándar jafnóvinsæll og Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra. Árni nýtur litlu meiri stuðnings en Frjálslyndi flokkurinn. Einungis 4,5 prósent Íslendinga eru ánægð með störf Árna.
Jóhanna Sigurðardóttir er langvinsælasti íslenski ráðherrann. Þrír af hverjum fjórum Íslendingar lýsa ánægju sinni með störf hennar. Næst á eftir kemur varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, með um 40 prósent stuðning.
Könnun Gallup vekur einnig athygli í því tilliti að einungis 21 prósent kjósenda segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef kosið yrði nú. Það er söguleg lægð flokksins. Vinstri grænir njóta mestra vinsælda, en 32 prósent hyggjast kjósa flokkinn. 31 prósent styður Samfylkinguna, en aðeins 8 prósent Framsóknarflokkinn.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 


„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna