ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Fréttamenn ráðast gegn útvarpsstjóra

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:08 › 1. desember 2008
Páll Magnússon er sagður skilningslaus af fréttamönnum sem starfa undir honum.

Páll Magnússon er sagður skilningslaus af fréttamönnum sem starfa undir honum.

Félag fréttamanna á Ríkisútvarpinu "fordæmir uppsagnir á fréttasviði Ríkisútvarpsins um mánaðarmótin". Fréttamennirnir krefjast þess að uppsagnirnar verði dregnar til baka og segja Pál Magnússon útvarpsstjóra vera skilningslausan. Jafnframt afþakka fréttamennirnir að Páll lesi upp fréttir þeirra í Sjónvarpinu.

Eftirfarandi er yfirlýsing sem send var á fjölmiðla rétt í þessu, en hún var samin á almennum fundi Félags fréttamanna:

Almennur fundur Félags fréttamanna fordæmir uppsagnir á fréttasviði Ríkisútvarpsins um mánaðamótin. Fundurinn krefst þess að uppsagnirnar verði dregnar til baka. Nú, þegar aldrei hefur verið nauðsynlegra að halda úti öflugri fréttaþjónustu er ráðist að grunnstarfsemi- og lögbundnum skyldum Ríkisútvarpsins með uppsögnum. Fundurinn harmar skilningsleysi útvarpsstjóra á hlutverki RÚV og afþakkar framvegis fréttalestur hans. Þá er þess krafist að hætt verði við áform um að leggja niður svæðisútsendingar Ríkisútvarpsins. Fundurinn hafnar alfarið boðuðum launalækkunum almennra starfsmanna undir hótun um brottrekstur.

Reykjavík, 1. desember 2008

Félag fréttamanna



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.