Baltasar kippir sér ekki upp við innbrotsþjófa, enda með þjófavörn. Úr kvikmyndinni Reykjavík - Rotterdam.
Þjófar gerðu atlögu að heimili leikstjórans Baltasars Kormáks í Miðstræti í miðborg Reykjavíkur á dögunum. "Það var einhver sem lenti á öryggiskerfinu hjá okkur," sagði Baltasar sallaróegur í samtali við Séð & heyrt vegna málsins.
Þjófarnir náðu ekki að stela Eddu-verðlaunum leikstjórans, en sjálfur hefur hann "látið greipar sópa" á verðlaunahátíðinni undanfarin ár. Baltasar Kormákur var ekki viðstaddur þegar þjófarnir óprúttnu komu. "Ég var ekki á staðnum en það er skrifstofa þarna við hliðina á og allt tengt inn. Það eru mikil mistök að reyna að brjótast inn hjá okkur. Bara eins og að labba beint á vegg," segir Baltasar Kormákur í samtali við Séð & heyrt.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Cox ekki sofið hjá í tæplega 2 ár
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar