ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.4° 10m/s S

Ástin dó hjá Bryndísi og Atla

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:14 › 1. desember 2008
  • Bryndís heldur í jákvæðnina í skugga skilnaðar.

    Bryndís heldur í jákvæðnina í skugga skilnaðar.

Átta ára sambandi leikaranna Bryndísar Ásmundsdóttur og Atla Þórs Albertssonar er lokið. Þau upplifðu samband sitt sem blindgötu og ákváðu að láta leiðir skilja við svo búið. Saman eiga þau níu ára og tveggja ára börn.

Bryndís ber sig vel í samtali við Séð & heyrt. "Heilsan er góð hjá okkur öllum og það skiptir mestu," segir hún.

Bryndís hefur undanfarið slegið í gegn í hlutverki Janis Joplin í Íslensku óperunni og Atli Þór hefur gert það gott í Fló á skinni í Borgarleikhúsinu. Bryndís heldur áfram með feril sinn af fullum krafti og segist í samtali við Séð & heyrt vera komin með nýjan umboðsmann.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.