Bjarni Ármanns hljóp undir norskum fána
Bjarni Ármannsson er seigur hlaupari og framsýnn viðskiptamaður.
Bjarni Ármannsson, fyrrverandi bankastjóri Glitnis, náði góðum árangri í Amsterdam-maraþoninu á dögunum. Svo hratt hljóp hann að hann náði níunda besta tíma þeirra sem hlupu fyrir sömu þjóð. Bjarni hljóp hins vegar ekki sem Íslendingur, heldur Norðmaður.
Bjarni kláraði maraþonið á þremur klukkustundum og átján mínútum. Af tæplega sex þúsund keppendum varð hann númer 731. Hér sést myndskeið úr maraþoninu, en þar tekur Bjarni framúr tveimur á endasprettinum með gráa derhúfu og í grænum bol.
Hér má sjá listann yfir Norðmennina sem kepptu í maraþoninu og árangur þeirra.
Bjarni fékk væna fúlgu þegar hann yfirgaf Glitni í maí í fyrra. Hann fékk um það bil 100 milljónir króna í starfslokasamning, auk þess sem honum hlotnaðist ríflega 380 milljóna króna hagnaður í krafti forkaupsréttar á hlutabréfum.
Þann 11. september sama árs var tilkynnt að Bjarni hefði tekið við stjórnarformennsku í orkuútrásarfélaginu Reykjavík Energy Invest. Eftir að REI var kæft í fæðingu vegna skorts á lýðræðislegum vinnubrögðum af hálfu borgarstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks fór Bjarni til Noregs, þar sem hann býr nú ásamt fjölskyldu sinni.
Undanfarið hafa leiðtogar í íslensku stjórnmálalífi skorað á auðuga landa sína að snúa heim með auð sinn til að taka þátt í endurreisn efnahagslífsins. Ekki er ljóst hvort Bjarni svarar kallinu, en bæði Jón Ólafsson og Hannes Smárason hafa lýst yfir vilja til að taka þátt í íslensku endurreisninni.
Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl 21:45
„Ég skammaðist mín“
Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl 21:20
Þjófurinn gripinn með lyftingarlóð
Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl 21:14
Tugum lóða skilað í Reykjanesbæ
Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl 20:22
Indónesar sluppu við flóðbylgjur
Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl 18:01
Gríðarlega öflugur jarðskjálfti
Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl 17:59
Samkomulag um Icesave
Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl 17:57
Tökum lán til að borga Icesave
Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl 17:41
Fá ekki að sjá tölvupóst látins ættingja
Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl 17:30
Lausn komin í Icesave-deiluna?
Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl 16:51
Herdís Egilsdóttir fékk verðlaun Jónasar Hallgrímssonar
Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl 15:19
Enn einn söngvarinn
Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl 15:07
Fékk glaðning frá Harmageddon
Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl 12:18
500 manns mótmæltu á Akureyri
Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl 11:47
Mikill áhugi á Íslandi
Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl 11:42
Jarðgöng hrundu í Kína
Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl 10:34
IMF tekur umsókn fyrir á miðvikudag
Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl 10:22
Reyndu að kveikja í Lögreglustöðinni
Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl 10:15
Aldraðir í Mexíkóborg fá víagra
Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl 10:13
Heilli kirkju stolið
Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl 07:51







