„Við vorum með fund í gær, hópur sem hefur tapað einum þriðja af sparifé sínu í peningabréfum Landsbankans,“ segir Hörður Hilmarsson, framkvæmdarstjóri, en á þriðja hundrað manns mætti á fund í gær. Meðal fundarmanna voru yfirmenn Nýja Landsbankans, Ásmundur Stefánsson, formaður bankaráðs og Elín Sigfúsdóttir, bankastjóri og svöruðu þau fyrirspurnum sem beint var til þeirra.
Einnig mættu tveir þingmenn, Álfheiður Ingadóttir og Atli Gíslason. Þá var talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason á staðnum og kom með gott innleg í umræðuna, frá lagalegu sjónarmiði.
„Við erum einfaldlega afar ósátt við þetta rán sem við viljum kalla svo og viljum fá þetta bætt. Við viljum að Landsbankinn og stjórnvöld beri ábyrgð og við gefum þeim frest til 15. desember til að tala við okkur um úrbætur,“ segir Hörður.
Hörður segir að mikið af fólki hafi tapað peningum í peningabréfunum en mikið af eldra fólki hafði lagt sparnað sinn í bréfin. Aðspurður um hvort hann hafi tapað miklu sparifé í peningabréfunum svarar Hörður: „Já ég gerði það, bæði prívat og mitt fyrirtæki, en þarna er mikið um eldra fólk sem var með örorkubætur, slysabætur og ellilífeyri og svo framvegis, sem það ætlaði að nota á efri árunum. Þetta kemur afskaplega illa við þetta fólk, þetta er ekki fólkið sem missti sig í eyðslufyllirí og var að kaupa tvo til þrjá jeppa á hvert heimili og með flatskjá í öllum herbergjum, fjórhjól og eyðandi og skuldandi út um allar jarðir. Þetta er fólkið sem var að spara og því er refsað með að taka einn þriðja af sparnaði sínum, það er bara ekki í lagi.“
Í fréttatilkynningu koma fram lausnir á tapi í peningabréfunum.
Tillögur til úrbóta, lausnir:
-Skuldajöfnun
-Skattaafsláttur
-Hlutabréf í Nýja Landsbankanum
-Inneign á verðtryggðum reikningi, bundin til 3ja-4ra ára
-Skaðabætur vegna rangra upplýsinga
Hörður segir að ef úrbætur ganga ekki eftir gæti svo farið að höfðað verður dómsmál. „Það er líka sá möguleiki að þetta fólk taki allar sínar inneignir út úr þessum banka og vilji ekki eiga viðskipti við banka sem tekur af fólki einn þriðja af spariféinu,“ segir Hörður að lokum.





Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“