Unglingar veita kynlífsþjónustu í skiptum fyrir hamborgara
Unglingum finnst í lagi að skipta á hamborgara og munnmökum.
Ein af hverjum tíu stúlkum í Danmörku telur í lagi að taka við greiðslu eða gjöfum eins og hamborgara fyrir munnmök. Nær 37 prósent danskra stráka telja slík skipti vera í lagi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni en þar er vitnað í nýja könnun sem gerð var af þjónustustofnuninni Servicestyrelsen .
Rætt var um unglinga og kynlíf út frá kynjasjónarmiði á sérfræðinganámstefnu sem haldin var á vegum Svía sem nú gegna formennsku í Norrænu ráðherranefndinni.
„Það sem gerst hefur er að sala á kynlífi er ekki lengur feimnismál. Vændi er orðið eðlilegt fyrir norræna unglinga“, segir Kira Appel, sérfræðingur í danska velferðar- og jafnréttisráðuneytinu og vísar þar til skýrslu Norrænu stofnunar um kynja- og kvennarannsóknir (NIKK).
Hún ítrekaði að norrænir unglingar telji klám vera fyrir alla sem eru orðnir kynþroska. Klám sé hluti af hversdagslífi unglinga á Norðurlöndum með aðgengi þeirra að Netinu, myndböndum og því sem ber fyrir augu þeirra á götum úti. Þetta hefur allt áhrif á skoðanir unglinganna á kynlífi, kaupum á kynlífi og neyslu á klámi.
Í dönsku könnuninni kemur fram mikill munur á afstöðu stráka og stúlkna. 53 prósent strákanna og 19 prósent stúlkna telur það vera í lagi að kaupa kynlífsþjónustu. Jafnframt segja 22 prósent stráka að þeir gætu vel hugsað sér að kaupa kynlífsþjónustu, en 97 prósent stúlkna myndi aldrei kaupa slíka þjónustu.
Appel segir einnig að danska könnunin sýni fram á að mikilvægt sé að hækka aldurstakmark þeirra sem mega kaupa kynlífsþjónustu, vegna þess að þeim mun yngri sem kaupendur kynlífsþjónustu séu fyrsta sinni, þeim mun meiri áhætta sé á því að þeir haldi áfram að kaupa hana.
Appel segir kannanir sem gerðar hafa verið á Englandi sýna fram á að margar unglingsstúlkur telji kynlíf og klám vera aðgangsmiða í skemmtanageirann og því telji margar þeirra þetta vera leið á framabrautinni. Hún telur sig hafa rökstuddan grun um að afstaða norrænna unglinga sé að breytast í sömu átt.
Á námstefnunni kom einnig fram að unglingar á Norðurlöndum nota sífellt sjaldnar smokka og því smitast stöðugt fleiri af kynsjúkdómnum klamydíu.
Þrátt fyrir að norrænir unglingar hafi aðrar skoðanir á klámi og kynlífi en fyrr, kemur einnig fram í könnuninni að unglinga skortir þekkingu. Í könnun sem gerð var í Finnlandi og kynnt var af Maija Ritamo kom mjög á óvart að 22 prósent stráka í grunnskólum og 20 prósent stúlkna í iðnskólum töldu að stúlkur gætu ekki orðið óléttar í fyrsta sinn sem þær stunduðu kynlíf.
Laugardagur 6. desember 2008 kl 20:56
Alvarlega slasaður eftir brunann í dag
Laugardagur 6. desember 2008 kl 20:44
Sími forsetans kostar fern árslaun
Laugardagur 6. desember 2008 kl 17:17
Trausti er talinn af
Laugardagur 6. desember 2008 kl 16:54
Fór úr axlarlið í klifri
Laugardagur 6. desember 2008 kl 16:21
Undirbýr hertari aðgerðir í mótmælum
Laugardagur 6. desember 2008 kl 14:27
„Okkur brá rosalega mikið“
Laugardagur 6. desember 2008 kl 14:08
Tveir á slysadeild eftir bruna í Reykjavík
Laugardagur 6. desember 2008 kl 13:53
65,5 prósent styðja ekki ríkisstjórnina
Laugardagur 6. desember 2008 kl 12:50
Árni langefstur sem versti bankamaðurinn
Laugardagur 6. desember 2008 kl 12:06
Ekki upplýstur fyrstu þrjá daga hrunsins
Laugardagur 6. desember 2008 kl 11:49
Varð Falur á sextugsaldri
Laugardagur 6. desember 2008 kl 11:41
Orkan lækkar eldsneytisverð
Laugardagur 6. desember 2008 kl 11:09
Kona og barn flutt á gjörgæslu eftir slys
Laugardagur 6. desember 2008 kl 10:17
Varað við flughálku
Laugardagur 6. desember 2008 kl 10:12
Lækkuðu bensín um fjórar krónur
Laugardagur 6. desember 2008 kl 10:09
Lýsa eftir vitnum að umferðarslysi
Laugardagur 6. desember 2008 kl 10:04
Rústaði húsi og leitaði að lyfjum
Föstudagur 5. desember 2008 kl 20:30
Berst við Sigur Rós
Föstudagur 5. desember 2008 kl 20:22
Skrýtnustu jólagjafirnar
Föstudagur 5. desember 2008 kl 20:00







