„Hann bankaði í öxlina á mér. Við erum nú svo góðir félagar við Steingrímur að ég kippi mér ekki upp við það,“ sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra við blaðamenn að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun.
Þeir sem horfðu á umræður um vantrausttillögu á ríkisstjórnina í gær veittu því eflaust athygli að Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, virtist ýta við Geir H. Haarde þar sem hann sat í sætinu sínu.
Björn Bjarnason var þá í pontu og sakaði Steingrím um að standa í vegi fyrir því að nefnd verði skipuð til að rannsaka bankahrunið. Steingrímur sakaði Björn um að fara með þvætting og sagði: Étt‘ann sjálfur! Að því búnu gekk hann að Geir og virtist ýta í hann.
Aðspurður hvað Steingrími hafi gengið til segir Geir: „Hann reiddist Birni Bjarnasyni. Það fór nú ekki framhjá neinum. Það er ekkert stórmál.“ Geir vildi þó ekki segja blaðamönnum hvað hafi farið þeim á milli þegar Steingrímur gekk að honum: „Það ætla ég ekki að segja ykkur,“ sagði Geir og skellti upp úr.
Hægt er að sjá upptöku af atvikinu hér



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
