Anna Helgadóttir, móðir sextán ára stúlku sem flutt var á slysvarðstofu í gærdag eftir piparúðaárás lögreglunnar, fjallar um málið á heimasíðu sinni og birtir mynd af stúlkunni þar sem hún lá illa haldin.
„Hún stóð neðst í tröppunum við lögreglustöðina á Hverfisgötu í dag og fólk var búið að vera fyrir utan í klukkutíma án þess að nokkuð lífsmark væri í húsinu. Þegar hópur fólks fór inn í andyrið barst hún með fjöldanum. Ég reyndi að ná til hennar og segja henni að koma út en hún heyrði ekki í mér eða sá mig.“ skrifar Anna á bloggi sínu um aðdraganda atviksins.
Hún segir að þegar fólk kom hlaupandi frá inngangi lögreglustöðvarinnar hafi hún fundið dóttur sína á nýjan leik, alveg blinda og sárkvalda. „Ég tók utanum hana o gleiddi hana útúr þvögunni og útí bíl til að koma henni uppá slysadeild. Fólk fyrir utan hringdi á sjúkrabíla en ég vildi ekki bíða þar sem hún var mjög kvalin.“ heldur Anna áfram og er þeirrar skoðunar að lögreglunni hafi borið að vara fólkið við áður en hún lét piparúðagusurnar rigna yfir fjöldann.
„Dóttir mín er núna búin að jafna sig að mestu, en hún er ennþá með sviða hér og þar. Ég er ennþá með sviða í andlitinu eftir að hafa tekið utanum hana og rekið andlitið á mér utaní úlupna hennar sem var gegnblaut af gasi. Ég hef aldrei séð dóttur mína jafn kvalda í dag og miðað við sársaukann frá því litla sem fór á andlitið á mér þá hafa þetta verið vítiskvalir sem hún leið.“ skrifar Anna Helgadóttir.
Færslu Önnu um raunir dóttur sinnar má sjá í heild sinni hér.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir