ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Barðist fyrir heimilislausa til dauðadags

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:25 › 23. nóvember 2008

Hinn ellefu ára Brenden Foster fékk hinstu ósk sýna uppfyllta áður en hann lést af völdum krabbameins. Óskin var sú að heimilislausu fólki yrði gefinn matur. Hann var of veikur til þess að gera það sjálfur en fólk allsstaðar að í Bandaríkjunum tók hann á orðunum. Í Seattle, Los Angeles, Ohio og á fleiri stöðum í Bandaríkjunum dreifði fólk mat og gaf heimilislausum og uppfylltu þannig ósk Brendens.

Brenden vissi sjálfur að hann ætti ekki mikið eftir, en sýndi mikið æðruleysi áður en hann lést. Hann sagði við blaðamann CNN að hann hefði skemmt sér vel og að hann myndi halda áfram að njóta lífsins þar til hann myndi deyja, sem væri jú hluti af gangi lífsins. Að deyja.

Myndbandið má sjá hér



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.