„Við lifðum af frostaveturinn mikla og getum því gefið góð ráð í kreppunni, jafnvel forsætisráðherrann gæti nýtt sér það” segir Grýla sem verður með blaðamannafund hjá Hjálparstarfi kirkjunnar mánudaginn 24. nóvember kl 10:30
Á fundinum munu Grýla og Skyrgámur afhenda rúmlega 720 þúsund krónur á skrifstofu Hjálparstarfs kirkjunnar við Háaleitisbraut 66.
Peningarnir koma frá Jólsveinaþjónustu Skyrgáms sem hefur í ellefu ár látið gott af sér leiða, að því er segir í tilkynningu. Fimmtungur veltu fyrirtækisins rennur til Hjálparstarfs kirkjunnar en samstarfið hefur skilað á fimmtu milljón króna til þeirra sem þurfa hjálp til sjálfshjálpar.
Í tilkynningunni segir að framlagið í ár mun renna til helminga til aðstoðar innanlands og til vatnsverkefna í Afríku. Þau munu við þetta tækifæri gefa Íslendingum góð ráð í kreppunni og telja að ráðamenn þjóðarinnar geti jafnvel nýtt sér þau.
"Til marks um að Jólasveinaþjónusta Skyrgáms leggur sitt af mörkum í kreppunni má geta þess að þjónusta þeirra hefur ekki hækkað í verði og þeir nota aðeins íslenskt sælgæti í nammipokum sem þeir dreifa."





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir