ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Uppþot við lögreglustöðina

17:08 › 22. nóvember 2008
Kveikjan að átökunum við lögreglustöðina er handtaka mannsins sem flaggaði Bónusfána á Alþingishúsinu.

Kveikjan að átökunum við lögreglustöðina er handtaka mannsins sem flaggaði Bónusfána á Alþingishúsinu. Mynd/Róbert Reynisson

Það er gríðarlegur hiti í fólki við lögreglustöðina í Reykjavík þar sem hundruð manna hafa safnast saman til að krefjast þess að ungi maðurinn sem flaggaði Bónusfánanum á Alþingishúsinu verði látinn laus. Mótmælendur hafa grýtt lögreglustöðina og útatað hana í rauðum lit og fjölmennt lögreglulið, klætt í óeirðagalla stendur vörð um húsið.

Rétt eftir að klukkan sló fimm tók fólk til við að henda eggjum í lögreglustöðina og þá lögreglumenn sem standa vörð um stöðina.

Til marks um hversu reitt fólk er og hve mikið það hefur látið heyra í sér að allir viðmælendur blaðamanns DV á staðnum eru hásir. Fólkið er afar ósátt við handtöku unga fánaflaggarans úr Alþingishúsinu, sem sagt var frá á DV.is í gærkvöldi fyrstum miðla.

Lögreglan er með gríðarlegan viðbúnað við lögreglustöðina. Fjölmennt lið er fyrir framan lögrelgustöðina og fyrir aftan lögreglustöðina eru verðir til að halda hliðum að porti lögreglustöðvarinnar lokuðum.

Hundruð manna eru á svæðinu og hafa margir þeirra komið af mótmælunum á Austurvelli sem haldin voru fyrr í dag. Þau voru þau fjölmennustu til þessa. Af frásögn fólks við lögrelgustöðuna að dæma hvatti Hörður Torfason, skipuleggjandi mótmælanna, fólk til að fara að lögrelgustöðinni og krefjast þess að fánaflaggarinn yrði látinn laus. Hörður og aðrir skipuleggjendur hafa alltaf lagt áherslu á að mótmælin séu friðsamleg en friðsemdinni er ekki fyrir að fara við lögreglustöðina.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.