Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG, er meðal þeirra sem mótmæla handtöku fánaflaggarans Hauks Hilmarssonar, við lögreglustöðina við Hlemm. Hún hefur verið að hlúa að þeim mótmælendum sem þurfa á aðhlynningu að halda eftir að lögreglan beitti táragasi.
Lögreglan segir mótmælin við lögreglustöðina ólögleg. Meðal þeirra sem er í fremstu röð mótmælendanna er þó þingmaðurinn og löggjafinn Álfheiður.
Mótmælendur við lögreglustöðina í Reykjavík saka lögreglu um að hafa setið fyrir fánaflaggaranum Hauki þegar hann var handtekinn í gærkvöldi. Telja sumir að með þessu hafi lögreglan reynt að koma í veg fyrir að hann gæti tekið þátt í mótmælunum í dag.
"Frelsið Hauk, frelsið Hauk," hljómar við lögreglustöðina. Miðað við ræðu eins mótmælanda fyrir skemmstu, var móðir Hauks flutt á slysadeild fyrir skemmstu til að fá aðhlynningu vegna táragass.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning
Reykjavíkurborg dæmd til að greiða Frjálslyndum 6,7 milljónir