Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Í dag klukkan 15 mun fólk safnast saman á Austurvelli til friðsamlegra mótmæla. Verður þetta sjöundi laugardagurinn í röð sem skipulögð mótmæli fara fram á þessum vettvangi.
Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu mótmælasamtakanna Nýrra tíma verða mótmælin undir leiðsögn hóps sem kallar sig Rödd fólksins.
Eins og DV greindi frá á dögunum voru samtökin Nýjir tímar ranglega sakaðir af Birni Bjarnasyni dóms- og kirkjumálaráðherra um að grýta lúxusráðherrabifreið hans með eggjum. Forsvarsmenn samtakanna undirstrika að aðgerðir þeirra séu með öllu friðsamleg og sama eigi við um mótmælin á Austurvelli í dag.
Búast má við þúsundum manna í miðbænum í dag en mótmælunum hefur vaxið ásmegin undanfarnar vikur og sífellt fleiri sótt þau.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Safnað fyrir nýfædda stúlku sem berst fyrir lífi sínu
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision