ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Össur sér olíugróða

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:23 › 22. nóvember 2008
Össur spáir þjóðinni ríkidæmi olíunnar

Össur spáir þjóðinni ríkidæmi olíunnar Dv

„Við munum fyrr en seinna skipa okkur á bekk með olíuþjóðum heimsins. Ég bind sterkar vonir við að olía og gas muni skapa mikinn auð á Íslandi, og afrakstur okkar mun allur renna í sameiginlega sjóði.“ skrifar iðnaðarráðherrann Össur Skarphéðinsson á vefsíðu sína í nótt.

Er Össur þar að skrifa um hvernig Ísland muni ná sér úr hinni djúpu kreppu sem fylgdi í kjölfar bankahruninu og hvert okkur beri að horfa. Hann segir grunninn í íslensku atvinnulífi sterkan, og nefnir olíuna sem gott dæmi. Eitt af fyrstu verkum Össurs var að leggjast yfir gögn um olíurannsóknir og þar komst hann að þeirri niðurstöðu að vísbendingar væru um að finna mætti olíu og gas á Drekasvæðinu, ef marka mætti orð norskra sérfræðinga.

Olíuvinnsla eftir 5 ár
„Ég hef látið nægja að segja að olíuvinnsla gæti í besta fallið verið farin af stað eftir tíu ár. Norskur sérfræðingur var bjartsýnni í sjónvarpi á dögunum. Hann nefndi 5-6 ár. Í öllu falli er ljóst, að sterkar vísbendingar eru um að Íslendingar eigi á næstu áratugum eftir að draga verulegt magn af olíu og gasi upp úr hafsbotninum.“ skrifar Össur og bendir á að veltan í rannsóknum og leit muni velta tugum milljarða.

Ísland, ríkasta þjóð í heimi
„Í lengd mun olíuvinnslan gera Ísland að ríkustu þjóð í heimi. Ég hef gefið skýr fyrirmæli um að þeir starfsmenn, sem ráðnir verða til að fara gegnum umsóknir, og meta leyfi, verði staðsettir á Norðurlandi. Það ætti varla að þurfa að greiða háa skatta á Íslandi eftir að olían kemur til sögunnar sem nýtt og öflugt svið í íslensku atvinnulífi.“

Landsbyggðin nýtur góðs af
Bindur Össur vonir við að olíuvinnslan sjálf muni þýða mikinn uppgang á þeim svæðum sem liggja næst Drekasvæðinu. Eins og Langanesbyggð og Vopnafjörður. Þá svarar Össur gagnrýni Árna Finnssonar, formanns Náttúruverndarsamtaka Íslands, sem sagði á dögunum að Össur ynni gegn stefnu ríkisstjórnarinnar um að gera Ísland að kolefnisfríu landi árið 2050.

Vinirnir í Qatar
„Ekkert er fjær sanni hjá Árna mínum, sem skilur ekki framtíð olíuvinnslu. Vinir mínir í Qatar sögðu að þeir störfuðu eftir því mottói að olía væri of dýr og torgæt til að siðferðilega væri heimilt að nýta hana til bruna. Framtíð hennar næstu áratugi fælist í því að framleiða ýmis dýr efni, sem hún er undirstaðan í. Við það yrði hún enn dýrari. Á sama tíma eru allar þjóðir heims að verja gríðarlegum upphæðum í að þróa nýja tækni, sem gerir olíu ónauðsynlega sem eldsneyti, og breytir henni í reynd í hráefni til iðnaðar. Takist vel til með olíuvinnsluna á Drekasvæðinu mun hún skapa áður óþekktan auð á Íslandi, sem byggir á alvöruframleiðslu en ekki akrobatík með hlutabréf af óvissu virði – einsog dæmin sanna.“

Færslu iðnaðarráðherra sem sett var inn í nótt má lesa í heild sinni hér.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.