Móðir mótmælanda gösuð af lögreglu
Eva Hauksdóttir sést hér halda tilfinningaþrungna ræðu vegna handtöku sonar hennar. Mynd: Róbert Reynisson.
Eva Hauksdóttir, móðir Hauks Hilmarssonar, mótmælandans sem lögreglan handtók skyndilega í gærkvöldi, var gösuð af lögreglu í átökunum við lögreglustöðina í Hverfisgötu fyrir skemmstu. Samkvæmt heimildum DV var hún flutt á slysadeild.
Eva hélt tilfinningaþrungna ræðu áður en allt sauð upp úr meðal hundruða mótmælenda við lögreglustöðina. Ástæða uppþotana var að Haukur var handtekinn skyndilega af lögreglu og látinn afplána tveggja vikna dóm vegna mótmæla frá árinu 2005, sem Eva segir að hann hafi þegar afplánað, en verið sleppt vegna plássleysis.
Mótmælendurnir eru ekki í nokkrum vafa um að handtaka og skyndiafplánun Hauks sé vegna þess að hann dró Bónus-fána að húni á þaki Alþingishússins í mótælum fyrir tveimur vikum.
Mikill mannsfjöldi er enn við lögreglustöðina. Mótmælendurnir standa andspænis óeirðabúnum lögreglumönnum og grýta þá eggjum. "Út með Hauk, inn með Geir!" kallar mannfjöldinn.
Fjöldi manns hefur orðið fyrir piparúða lögreglu, og skemmdirnar á lögreglustöðinni eru töluverðar. Rúður hafa verið brotnar og mótmælendurnir brutu upp útihurð að anddyri lögreglustöðvarinnar.
Eins og fyrr segir hafa mótmælendur ekki látið staðar numið þrátt fyrir að hafa orðið fyrir piparúða lögreglumanna.
Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 23:33
Séra Gunnar sýknaður
Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 23:20
Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna
Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 23:10
Netþjösni dæmdur
Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 22:15
Hélt dagbók yfir refsingar
Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 21:22
Kólera og vatnsskortur í Harare
Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 21:12
Sexí grýla
Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 20:13
Óskalisti Björgólfs fyrir jólin
Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 18:08
Mótmæla í París
Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 17:50
Forsetinn hvetur til byltingar í stafrænu ljóði
Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 17:45
Range Rover-brúðkaup í skugga gjaldþrots
Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 17:39
Nýjar upptökur af einræðisherra
Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 17:00
Hrímaðir tónleikar Gunnars Gunnarssonar
Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 17:00
Sparisjóðsstjóri á ofurlaunum
Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 16:00
Tenórarnir fjórir í Óperunni
Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 15:30
Reyndi að frelsa mann úr haldi lögreglu
Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 15:30
Auður og Sigurbjörg tilnefndar
Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 15:14
Franskir hommar elska Gillz
Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 14:40
Aðför ríkisins að RÚV
Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 14:37
Rjúpnaskyttan enn ófundin
Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 14:30








