Frjáls fánamaður krefst byltingar

Haukur hélt innblásna byltingaræðu fyrir utan lögreglustöðina.

Haukur hélt innblásna byltingaræðu fyrir utan lögreglustöðina. Mynd:Valur Grettisson.

Laugardagur 22. nóvember 2008 kl 18:02

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Lögreglan hefur leyst Hauk Hilmarsson mótmælanda úr haldi. Mörg hundruð manns gerðu áhlaup á lögreglustöðina seinni partinn í dag vegna skyndilegrar handtöku hans.

Haukur endurheimti frelsi sitt eftir að óþekktur maður borgaði sekt hans, sem var grundvöllur handtökunnar. Eftir að hann gekk út úr lögreglustöðinni frjáls maður sagðist hann skilja reiði fólksins. ,,Ég vil að það verði barist fyrir byltingu en ekki fyrir mig," sagði Haukur við DV. Mótmælandinn var fangelsaður fyrir að hengja bónusfána á Alþingishúsið. Hauki var sleppt var fyrir hálftíma síðan eftir að velgjörðarmaður hafði borgað hann út. Honum var haldið í klefa sínum utan tvo klukkutíma sem hann fékk að fara út.,
Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út þegar honum var sleppt. Hauykur kallaði yfir hópinn. ,,Ég vil að við nýtum alla þessa orku tikl að fella ríkisstjórnina strax. Hann sagðist hafa haft efasemdir um að samþykkja að óþekkti aðilinn greiddi sekt hans, sem kom til vegna þess að hann mótmælti virkjunum árið 2005. Handtaka hans hefur hins vegar verið sett í samhengi við þann táknrænan gjörning hans að draga fána Bónus-verslunarkeðjunnar að húni á þaki Alþingishússins, þar sem þjóðfáni Íslendinga blaktir öllu jafnan.

Uppþotin hafa sjatnað eftir lausn Hauks, en þó er ljóst að handtaka hans er aðeins toppurinn á ísjakanum þegar kemur að þeirri reiði sem kraumar í mótmælendunum. Önnur krafa þeirra var að Geir Haarde forsætisráðherra yrði settur í klefann í stað Hauks, en ljóst er að ekki verður orðið við þeirri kröfu.

Eftir stendur að fjöldi mótmælendanna eru sárir, eftir að sérsveit lögreglunnar sprautaði piparúða yfir mannfjöldann. Meðal þeirra sem urðu fyrir gasinu eru börn og unglingar, sem og móðir Hauks.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 23:33

Séra Gunnar sýknaður

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 23:20

Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 23:10

Netþjösni dæmdur

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 22:15

Hélt dagbók yfir refsingar

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 21:22

Kólera og vatnsskortur í Harare

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 21:12

Sexí grýla

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 20:13

Óskalisti Björgólfs fyrir jólin

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 18:08

Mótmæla í París

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 17:50

Forsetinn hvetur til byltingar í stafrænu ljóði

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 17:45

Range Rover-brúðkaup í skugga gjaldþrots

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 17:39

Nýjar upptökur af einræðisherra

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 17:00

Hrímaðir tónleikar Gunnars Gunnarssonar

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 17:00

Sparisjóðsstjóri á ofurlaunum

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 16:00

Tenórarnir fjórir í Óperunni

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 15:30

Reyndi að frelsa mann úr haldi lögreglu

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 15:30

Auður og Sigurbjörg tilnefndar

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 15:14

Franskir hommar elska Gillz

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 14:40

Aðför ríkisins að RÚV

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 14:37

Rjúpnaskyttan enn ófundin

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 14:30

Hóta að grýta Mugison